Tap hluthafa Bakkavarar [ BAKK ] á öðrum ársfjórðungi var 23,7 milljónir punda (3,8 milljarðar króna), samanborið við 15,5 milljón punda hagnað á sama tíma fyrir ári.

Tap af skiptasamningi félagsins vegna 10,9% hlutar í Greencore Group PLC  var 30,4 milljónir punda á fjórðungnum en litið til fyrstu sex mánuði ársins, nemur tapið 46,2 milljónum  punda.

EBITDA var 32,2 á öðrum ársfjórðungi ársins, samanborið við 40,8 á sama tíma fyrir ári. EBITDA hlutfall lækkar í 7,6% úr 10,9% milli ára.