Baldur Dýrfjörð, lögfræðingur, hefur verið ráðinn til Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samorku.

Baldur starfaði áður hjá Norðurorku hf. sem er veitufyrirtæki í eigu sex sveitarfélaga við Eyjafjörð. Þar áður starfaði Baldur sem starfsmannastjóri Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, sem bæjarlögmaður hjá Akureyrarbæ og lögfræðingur Íslandsbanka.

Baldur hefur, sem fulltrúi Norðurorku hf., starfað í ýmsum nefndum og ráðum hjá Samorku í gegnum tíðina. Hann þekkir því vel til samtakanna, þjónustu þeirra við aðildarfyrirtækin og hlutverks þeirra sem málsvara orku- og veitufyrirtækja.

Samorka var stofnuð árið 1995 við samruna Sambands íslenskra hitaveitna (stofnuð 1980) og Sambands íslenskra rafveitna (stofnuð 1942). Innan samtakanna starfa fráveitur, hitaveitur, vatnsveitur, raforkuframleiðendur, raforkusalar og flutnings- og dreifingarfyrirtæki raforku.