Baldur Guðnason, forstjóri Hf. Eimskipafélags Íslands hefur ákveðið að láta af störfum hjá félaginu að eigin ósk og hættir störfum hjá félaginu frá og með deginum í dag segir í tilkynningu sem send var út rétt í þessu.  Stefán Ágúst Magnússon, sem verið hefur aðstoðarforstjóri félagsins undanfarin ár, mun sinna starfi forstjóra þar til annað verður tilkynnt.

Sindri Sindrason, stjórnarformaður Eimskips segir í tilkynningunni:  „Fyrir hönd stjórnar Eimskips þakka ég Baldri vel unnin störf í þágu hluthafa Eimskips á undanförnum árum. Undir stjórn Baldurs hefur félagið tífaldað veltu sína. Áætluð velta á árinu 2008 er tæplega 190 milljarðar króna eða 1.900 milljónir evra og arðsemi félagsins hefur aukist verulega á undanförnum árum. Eimskip er í dag öflugasta skipafélagið í flutningum innan Evrópu og stærsta kæli- og frystigeymslu fyrirtæki á heimsvísu. Ég vil óska Baldri velfarnaðar á nýjum vettvangi.“

"Þegar ég hóf störf hjá Eimskip setti félagið sér skýr markmið, þ.e. að verða leiðandi flutningsaðili í Evrópu og að verða leiðandi aðili í geymslu á hitastýrðum afurðum á alþjóðavísu. Þessum markmiðum hefur nú verið náð og því góður tímapunktur að breyta til og takast á við önnur verkefni. Fyrirtækið er í höndunum á frábærum stjórnendum og þakka ég þeim og öllu samstarfsfólki mínu um allan heim fyrir ánægjulegt samstarf á undanförnum árum," segir Baldur Guðnason, fráfarandi forstjóri Eimskips í tilkynningunni.