Baldur Örn Guðnason, sem nýlega lét af störfum sem forstjóri Eimskipafélagsins, hefur látið af stjórnarsetu hjá Icelandic Group hf.

Stefán Ágúst Magnússon, forstjóri Eimskipafélagsins,  tekur sæti hans í stjórninni, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Stefán Ágúst hefur setið sem varamaður í stjórn félagsins.