Baldur Kristjánsson hjá Valitor.
Baldur Kristjánsson hjá Valitor.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Baldur Kristjánsson hefur tekið við starfi deildarstjóra vöru- og verkefnastýringar á sviðinu Vöruþróun og nýsköpun hjá Valitor.

Áður starfaði Baldur sem hugbúnaðarráðgjafi hjá Advania frá 2010 til 2015 og var einnig hópstjóri hjá upplýsinga- og tæknisviði Kaupþings banka frá 2005 til 2008. Þá starfaði hann sem upplýsingatæknistjóri Lyfjastofnunar frá 2003 til 2005 og þar áður sem forritari hjá Eimskip.

Hann hefur lokið M.Sc. í Business Informatics frá Universitet Utrecht árið 2010 og B.Sc. í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2003.