Baldur Guðlaugsson hefur falið lögmannsstofunni Lex að senda kæru til Mannréttindadómstóls Evrópu. Það verður gert á næstunni, samkvæmt tilkynningu sem send var fjölmiðlum í dag. Baldur var þann 17. febrúar síðastliðinn sakfelldur í Hæstarétti fyrir innherjasvik.

Lögfræðingar Baldurs telja að með dómnum hafi í vegamiklum atriðum verið brotinn réttur á Baldri í skilningi ákvæða Mannréttindasáttmála Evrópu.

Í tilkynningu eru talin fimm atriði sem lögmenn telja að réttur Baldurs til réttlátrar málsmeðferðar hafi ekki verið virtur. Meðal annars er talið að brotið hafi verið gegn rétti hans til að þurfa að sæta ekki endurtekinni málsmeðferð vegna refsiverðrar háttsemi og að brotið hafi verið á rétti hans til réttlátrar málsmeðferðar þar sem hann hafi veri sakfelldur fyrir annað en hann var ákærður fyrir.

„Baldur var ákærður fyrir að hafa verið annar innherji í skilningi laga en sakfelldur fyrir að hafa verið tímabundinn innherji. Á þessu tvennu er grundvallarmunur og varnir Baldurs tóku eðlilega mið af því sem ákært var fyrir,“ segir í tilkynningu frá LEX.

Þá er talið að málsmeðferð hafi ekki verið réttlát þar sem Hæstiréttur tók ekki afstöðu til veigamikilla atriða í vörn Baldurs, „þar með talið þeirrar grundvallarstaðreyndar að hvorki Landsbankinn né Fjármálaeftirlitið töldu þær upplýsingar sem baldur var dæmdur fyrir að hafa búið yfir vera innherjaupplýsingar“.

Þá telja lögmenn hans að sönnunarbyrði hafi verið snúið við í málinu, og hann því ekki notið þeirra grundvallarréttinda að teljast saklaus uns sekt er sönnuð. „Í fimmta lagi er talið að réttur Baldurs til réttlátrar málsmeðferðar samkvæmt 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu hafi ekki verið virtur þar sem verulegur vafi leiki á því að mál Baldurs hafi í raun notið óvilhallrar meðferðar fyrir dómi,“ segir í tilkynningu frá LEX. Karl Axelsson hrl. er lögmaður Baldurs.