Baldvina Snælaugsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Kringlunnar.
Fram kemur í tilkynningu um ráðninguna að Baldvina hefur mikla reynslu af markaðs – og auglýsingamálum. Hún starfaði áður hjá Vodafone í 14 ár, eða frá stofnun þess fyrirtækis 1998. Hún var verkefnastjóri á markaðsdeild í 12 ár og þar af markaðsstjóri Vodafone í 6 ár. Áður starfaði Baldvina sem forstöðumaður sambýlis fatlaðra á Akureyri, lauk prófi frá Þroskaþjálfaskóla Íslands 1998.
Baldvina er í sambúð með Ágústi Héðinssyni, forstöðumanni útvarpssviðs 365.