Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, og Baltasar Kormákur Baltasarsson, kvikmyndaleikstjóri og eigandi RVK Studios, undirrituðu í dag samning um kaup RVK Studios á skemmu Áburðarverksmiðjunnar við Gufunesveg 21. Kaupverðið er 320 milljónir og tíu þúsund krónur. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

„Borgarráð samþykkti þann 15. apríl 2021 að hefja söluferli vegna Gufunesvegar 21. Um sölusamkeppni var að ræða þar sem blanda af hugmynd, þekkingu og reynslu var metin til viðbótar við boðið kaupverð. Kvikmyndafyrirtækið True North og RVK Studios buðu í skemmuna. Þann 30. september það sama ár veitti borgarráð eignaskrifstofu Reykjavíkur heimild til að ganga til samnings við RVK Studios um kaup á Gufunesvegi 21,“ segir í fréttatilkynningu Reykjavíkurborgar.

RVK Studios skuldbindi sig til þess að starfrækja kvikmyndaver og tengda starfsemi og þjónustu í húsnæðinu. Um sé að ræða birgðageymslu sem sé um 2.846 fermetrar að stærð og hins vegar sekkjunarstöð, sem sé skráð 1.460 fermetrar að stærð, samtals 4.306 fermetrar.

„RVK Studios starfrækir nú þegar kvikmyndagerð og sjónvarpsframleiðslu í fyrri skemmu Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi sem hentar vel fyrir stærri verkefni. Skemman sem RVK Studios kaupir í dag mun henta vel undir smærri verkefni og fleiri en eina samtímatöku,“ segir jafnframt í tlkynningu.

Kvikmyndaþorpið í Gufunesi sé nú þegar orðið eitt stærsta atvinnusvæðið í austurhluta borgarinnar. Gufunes hafi gengið í gegnum endurnýjun lífdaga eftir að RVK Studios hófu þar starfsemi en í kjölfarið hafi minni kvikmyndatengd fyrirtæki tekið að koma sér þar fyrir. Hægt og bítandi sé Gufunesið því að breytast úr svæði undir grófan iðnað líkt og starfsemi Íslenska gámafélagsins yfir í „mest spennandi umbreytingarsvæðið í borginni.“

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir í tilkynningunni samninginn mikilvægan lið í að gera Reykjavíkurborg að blómstrandi borg kvikmynda og skapandi greina. „Með tvöföldun á aðstöðu RVK Studios í Gufunesi er draumurinn um alþjóðlega samkeppnishæft kvikmyndaþorp að verða að veruleika."