Baltasar Kormákur
Baltasar Kormákur
© BIG (VB MYND/BIG)
Baltasar Kormákur segir það venjast fljótt að leikstýra þekktum stjörnum úr Hollywood.

Baltasar Kormákur hefur verið mikið í sviðsljósinu und­anfarið en nýjasta kvikmynd hans, Contraband, hefur notið mikillar velgengni á und­anförnum vikum. Tekjur af mynd­inni nema nú tæpum 80 milljónum Bandaríkjadala á heimsvísu og allt stefnir í að tekjur af henni fari yfir 100 milljónir dala. Myndin er endurgerð á íslensku kvikmynd­inni Reykjavík Rotterdam sem naut mikilla vinsælda hér á landi fyrir örfáum árum. Kostnaður­ inn við framleiðslu myndarinnar nam um 25 milljónum dala þann­ig að ljóst er að hagnaðurinn af henni verður a.m.k. um 75 millj­ónir dala.

Að sögn Baltasars hafa tekjurnar af myndinni farið langt fram úr væntingum. Sigurvíman vegna Contraband varir þó ekki lengi því nú taka við önnur verkefni sem þarf að sinna. Baltasar er þessa dagana að leggja lokahönd á myndina Djúpið. Hún byggir á sannsögulegum atburð­ um og sundafreki Guðlaugs Frið­þórssonar, sem í mars 1984 synti í land eftir að báturinn Hellisey sökk um miðja nótt um 6 km aust­an af Vestmannaeyjum. Djúpið er stórt verkefni á íslenskum mælikvarða. Baltasar keypti 90 tonna bát og myndin var að mestu tekin úti á sjó.

„Við ákváðum þess vegna að taka þetta bara á hafi úti,“ segir Baltasar. „Þetta var erfitt verk­ efni, við vorum úti á sjó meira og minna í fimm vikur. Þetta var líka með dýrari verkefnum sem við höfum farið í hér á Íslandi.“

Nánar er rætt við Baltasar Kormák í viðtali í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð hér að ofan.