Geir H. Haarde, forsætisráðherra, átti í dag fund með Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, í New York.

Í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að á fundinum hafi þeir rætt um alþjóðleg viðbrögð við afleiðingum loftlagsbreytinga, framlag Íslands á vettvangi SÞ og framboð Íslands til setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

Ban Ki-moon þáði boð forsætisráðherra um að heimsækja Ísland þegar tækifæri gæfist.

Geir er nú staddur í New York vegna Allsherjarþings Sameinuðu Þjóðanna. Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, er starfandi forsætisráðherra í fjarveru Geirs.