Boston er fyrsta borgin í Bandaríkjunum til að samþykkja formlega notkun á Ford Transit Connect í leigubílaakstur í borginni. Bíllinn kom í sölu á mánudag og fara fyrstu bílarnir í nýjan leigubílaflota í Bean Town að því er segir í The Detroit News.

„Við erum mjög hrifnir af Transit Connect,” segir Mark Cohen stjórnandi leyfisveitingadeildar lögreglunnar. „Þetta er besta sérsmíðaða ökutækið til leigubílaaksturs sem ég hef séð í 25 ár.”

Ford hefur unnið að því að þróa Transit Connect bílinn að þörfum bandaríska leigubílamarkaðarins síðan 2006. Auk hefðbundinnar bensínvélar er í boði að fá bílinn útbúnaði til knýja hann áfram með gasi.