Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 2,97% skömmu eftir opnun markaðar og er 7.918 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nemur um tveimur milljörðum króna.

Markaðir erlendis hafa einnig farið lækkandi í kjölfar þess að störfum í Bandaríkjunum fjölgaði ekki í takt við væntingar.

Exista hefur lækkað um 4,93%, Föroya banki hefur lækkað um 4,02%, Landsbankinn hefur lækkað um 3,56%, Kaupþing hefur lækkað um 3,17% og Straumur hefur lækkað um 2,76%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,24% og er 121,1 stig.

Danska vísitalan OMXC hefur lækkað um 1,16%, norska vísitalan OBX hefur lækkað um 0,89%, sænska vísitalan OMXS hefur lækkað um 0,67% og japanska vísitalan TOPIX hefur lækkað um 2,04%. Breska vísitalan FTSE 100 hefur þó hækkað um 0,10%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.