Bandaríska hagkerfið dróst saman um 0,7% á fyrsta ársfjórðungi í samanburði við sama tíma á síðasta ári. BBC News greinir frá þessu.

Hagstofa Bandaríkjanna hefur þannig endurmetið fyrri tölur sem sögðu til um 0,2% hagvöxt á tímabilinu. Fyrri útreikningar vanmátu magn innflutnings og ofmátu fjárfestingar fyrirtækja.

Bandarískt hagkerfi dróst síðast saman á fyrsta ársfjórðungi í fyrra, en þá var samdrátturinn öllu meiri eða 2,1%.