Meðalspá greiningaraðila sem Reuters hefur tekið saman gerir ráð fyrir að störfum í einkageiranum hafi fækkað um 60.000 í júlí í Bandaríkjunum.

Í júní fækkaði þeim um 77.000.

Opinberar tölur um fækkun eða fjölgun starfa berast á föstudag. Fækki störfum verður júlí sjöundi mánuðurinn í röð sem það gerist í Bandaríkjunum.