Störfum fækkaði um 20.000 í apríl í Bandaríkjunum samkvæmt nýjum tölum frá atvinnumálaráðuneyti Bandaríkjanna.

Þrátt fyrir að það sé minni fækkun en búist var við er þetta engu að síður fjórði mánuðurinn í röð þar sem störfum vestanhafs fækkar.

Atvinnuleysi er nú um 5% í Bandaríkjunum samkvæmt Bloomberg fréttaveitunni.