Bandaríski fjárfestingarsjóðurinn Vestar Capital Partners hefur keypt stóran hlut í íslenska svefnrannsóknarfyrirtækinu Nox Health, sem er móðurfélag Nox Medical ehf. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Kaup Vestar eru annarsvegar gerð með hlutafjáraukningu og hinsvegar með kaupum á eignarhlut af núverandi hluthöfum. Seljandi er að langstærstum hluta framtakssjóður í rekstri Alfa Framtaks ehf., sem lætur allt hlutafé af hendi. Á þessu stigi gefur félagið ekki upplýsingar um fjárhæðir í viðskiptunum.

Hlutafjáraukningunni er ætlað að styðja við öran vöxt Nox Health og styrkja enn frekar stöðu þess sem leiðandi fyrirtæki á sínu sviði. Nox Holding ehf. fer eftir sem áður með stærstan eignarhlut í Nox Health en félagið er að langstærstum hluta í eigu stjórnenda og stofnenda.

Nox Health varð til við samruna Nox Medical og bandaríska hlutdeildarfélags þess FushionHealth árið 2019. Fyrirtækið skiptist í þrjár rekstrareiningar; Nox Medical, Nox Enterprise og FushionSleep og eru höfuðstöðvar þess í Atlanta í Bandaríkjunum og Reykjavík.

Vestar Capital Partners er leiðandi fjárfestingarsjóður sem sérhæfir sig í langtíma vaxtarfjárfestingum. Sjóðurinn fjárfestir í fyrirtækjum sem starfa í tækni- og heilbrigðisgeiranum.

Canaccord Genuity var ráðgjafi Nox Health en Kvika Securities Ltd í London var ráðgjafi Nox Holding í þessum viðskiptum

Sigurjón Kristjánsson, forstjóri Nox Health:

„Markmið okkar er að bæta svefnheilsu fólks um allan heim með því að auðvelda aðgengi að heilbrigðisþjónustu þar sem svefnvandamál eru meðhöndluð með þeim tæknilausnum og þjónustu sem við höfum upp á að bjóða. Þannig aukum við bæði gæði þjónustunnar og lækkum kostnað. Vestar Capital Partners er traustur fagfjárfestir sem leggur Nox til mikla sérþekkingu og reynslu úr heilbrigðisgeiranum og gefur okkur tækifæri til að sækja enn hraðar fram meðal annars á sviði þróunar, framleiðslu og dreifingu lækningavara.

Á þessum tímapunkti eru stjórnendur Vestar Capital Partners frábærir félagar til að taka við keflinu sem kjölfestufjárfestir í Nox Health. Reynsla þeirra, þekking, tengsl og fjárfestingar innan bandaríska heilbrigðiskerfisins færir ómæld verðmæti inn í Nox. Um leið og við bjóðum þá velkomna í hluthafahópinn færum við Alfa Framtaki bestu þakkir fyrir frábært samstarf sem hefur reynst félaginu ákaflega heilladrjúgt. Án aðkomu þeirra á sínum tíma væri félagið ekki í þeirri sterku stöðu sem það er í dag.“

Roger Holstein, framkvæmdastjóri hjá Vestar Capital Partners:

„Svefnleysi er alvarlegt heilsufarslegt vandamál og tengt sjö af fimmtán algengustu dánarorsökum fólks.

Nox Health er fremst allra fyrirtækja í að þróa lækningatæki til greiningar á svefnvandamálum auk þess sem Nox hefur hannað einstakar tækni- og þjónustulausnir sem notaðar eru til að veita alhliða heilbrigðisþjónustu við greiningu, meðhöndlun og eftirfylgni á svefnvanda. Lausnir Nox eru hannaðar með hagsmuni notenda að leiðarljósi og með þeim má stórauka gæði þjónustu og lækka kostnað í heilbrigðiskerfinu. Tækifærin fyrir Nox Health eru svo sannarlega til staðar enda tugir milljóna manna sem eiga enn eftir að finna lausn sinna svefnvandamála. Við hjá Vestar Capital Partners erum spennt að fá að taka þátt í þessu verkefni og leggja okkar lóð á vogarskálarnar á næsta vaxtarskeiði Nox Health.“

Gunnar Páll Tryggvason, framkvæmdastjóri Alfa Framtaks:

„Alfa Framtak kom að félaginu árið 2019 með það að leiðarljósi að styðja við sameiningu Nox Medical og Fusion Health undir merkjum Nox Health. Með sameiningunni var stefnt að því að auka sókn á erlendum mörkuðum og hraða vexti. Samstarf okkar og félagsins hefur verið farsælt, settum markmiðum var náð og ávöxtun hluthafa góð. Þó okkar kafla sé lokið verður spennandi að fylgjast með Nox Health næstu árin. Félagið er leiðandi á sínu sviði og vinnur að því að leysa svefntengd heilsufarsvandamál. Tækifærin til vaxtar eru mikil og óskum við stjórnendum og hluthöfum áframhaldandi velgengni á komandi árum.“