Bandaríski fjárfestingarsjóðurinn Briarwood Capital Partners LP er kominn með 1,7% hlut í Icelandair og er orðinn áttundi stærsti hluthafinn, samkvæmt uppfærðum lista yfir stærstu hluthafa flugfélagsins.

Briarwood á nú 707 milljónir hluta í Icelandair sem er 1,4 milljarðar króna að markaðsvirði. Gera má ráð fyrir að sjóðurinn hafi verið á kaupendahliðinni í stórum viðskiptum á mánudaginn síðasta.

Á heimasíðu Briarwood segir að sjóðurinn fjárfesti á ýmsum sviðum, þar á meðal í samgöngum, innviðum, flugiðnaði, framleiðslufyrirtækjum, fyrirtækjum sem sinna vöruferilsstjórnun og endurvinnslu. Jafnframt er talað um að sjóðurinn fjárfesti yfirleitt á Bandaríkjamarkaði.

Bandarísk fjárfestingarfélög með fimmtungshlut

Meðal tuttugu stærstu hluthafa Icelandair eru nú fjögur bandarísk fjárfestingarfélög sem eiga samtals 21,3% hlut í flugfélaginu.

Bain Capital varð stærsti hluthafi Icelandair í júní 2021 og fer nú með 17,2% hlut. Þá keypti Miri Capital Management nýlega 1,5% hlut í Icelandair. Auk þess er sjóðurinn SFC Foresta Master Fund L.P, í stýringu vogunarsjóðsins Stone Forest Capital, með 0,9% hlut.

Stærstu hluthafar Icelandair þann 26. jan 2023.

Hluthafi Fjöldi hluta Í %
Bain Capital 7.073.868.087 17,20%
Arion banki hf. 1.458.246.125 3,55%
Gildi 1.336.967.434 3,25%
Brú lífeyrissjóður 1.236.221.741 3,01%
LSR A-deild 1.058.876.730 2,57%
Almenni 933.984.111 2,27%
Íslandsbanki hf,safnskráning 2 789.510.632 1,92%
Briarwood Capital Partners LP 707.000.000 1,72%
Sólvöllur ehf. 663.704.375 1,61%
Íslandsbanki hf. 642.242.737 1,56%
The Miri Strategic Emerging Ma 607.800.000 1,48%
Landsbréf - Úrvalsbréf hs. 523.404.987 1,27%
Lífeyrissjóður verzlunarmanna 512.361.239 1,25%
Birta lífeyrissjóður 462.691.996 1,13%
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 441.124.247 1,07%
Einstaklingur 1 420.000.000 1,02%
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 405.857.799 0,99%
Kvika banki hf. 377.977.891 0,92%
EFÍA 364.740.510 0,89%
SFC Foresta Master Fund, L.P 364.000.000 0,89%
Heimild: Icelandair