Hlutabréf hafa lækkað í Evrópu það sem af er degi og hefur FTSEurofirst 300 lækkað um 1% frá því í morgun og hefur ekki verið jafn lág frá því í byrjun apríl.

Líkt og í gær eru það bankar og fjármálafyrirtæki sem leiða lækkanir dagsins. Þannig hafa RBS, BNP Paribas, Barclays og HBOS allirl lækkað á bilinu 2-3% í morgun.

Viðmælendur Reuters fréttastofunnar er sammála um að vaxandi áhyggjur af verðbólgu sé helsta ástæða þess að fjárfestar haldi að sér höndum en menn óttast skriðu stýrivaxtahækkana.

Í Lundúnum hefur FTSE 100 vísitalan lækkað um 0,3%, í Amsterdam hefur AEX vísitalan lækkað um 0,8% og í Frankfurt hefur DAX vísitalan lækkað um 0,8%.

Þá hefur CAC 40 vísitalan í París lækkað um 0,8% og SMI vísitalan í Sviss hefur lækkað um 1%.

Í Kaupmannahöfn hefur OMXC vísitalan lækkað um 0,6%, í Osló hefur OBX vísitalan lækkað um 1,2% og í Stokkhólmi hefur OMXS vísitalan lækkað 0,7%.