Markaðir hækkuðu mikið í Asíu í dag, eða um 3,1% mælt með DJ Asia Pacific hlutabréfavísitölunni. Skörp hækkun hefur verði í Evrópu í fyrstu viðskiptum í morgun, en Euronext 100 hefur hækkað um 1,6% þegar þetta er skrifað. Hækkunin kemur í kjölfar mikillar hækkunar á Wall Street í gær.

Bankar hafa leitt hækkanirnar í Evrópu að sögn Reuters. Sömu er að segja í Asíu og í Bandaríkjunum í gær.