Hlutabréfamarkaðir lækkuðu í Evrópu í dag en það voru helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu lækkanir dagsins auk bílaframleiðanda eftir að ljóst var að ekki næðist að framkvæma sérstakar björgunaraðgerðir til handa bílaframleiðendum í Bandaríkjunum.

FTSE 300 vísitalan, sem mælir helstu hlutabréfavísitölur Evrópu, lækkaði um 2,8% í dag og hefur þannig lækkað um 45% það sem af er ári.

Eins og áður voru það helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu lækkanir dagsins. Þannig lækkaði Royal Bank of Scotland unm 18,9%, HBOS um 23%, Barclays um 8,1%, Credit Agricole um 8,6% og UBS um 15%.

Þá lækkuðu bílaframleiðendurnir BMW, Daimler, Renault, Peugeot og Porsche á bilinu 2% - 6% í dag.

Í Lundúnum lækkaði FTSE 100 vísitalan um 2,5%, í Amsterdam lækkaði AEX vísitalan um 2,75% og í Frankfurt lækkaði DAX vísitalan um 2,2%.

Í París lækkaði CAC 40 vísitalan um 2,8% og í Sviss lækkaði SMI vísitalan einnig um 1,6%.

Í Kaupmannahöfn lækkaði OMXC vísitalan um 1,4%, í Stokkhólmi lækkaði OMXS vísitalan um 2,4% en í Osló lækkaði OBX vísitalan um 6,3%.