Búið er að greina þau álitaefni sem nauðsynlegt er að láta reyna á fyrir dómi í kjölfar nýjasta dóms Hæstaréttar um útreikning á ólögmætum gengistryggðum lánum. Ekki er hægt að hefja endurútreikning íbúðalána sem falla undir dóm Hæstaréttar frá því í febrúar vegna óvissu um reikningsaðferð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum fjármálafyrirtækja (SFF) og fulltrúum lánþega. Aðilar eru sammála um að reynt verði að tryggja að málarekstur verði lántakendum að kostnaðarlausu og að umboðsaðilar skuldara gæti hagsmuna þeirra. Óskað verður eftir flýtimeðferð hjá dómstólum. Verði við þeirri beiðni gætu fyrstu dómar legið fyrir í haust.

Samkeppniseftirlitið heimilaði í mars samstarf milli fjármálafyrirtækja sem miðar að því að hraða úrvinnslu skuldamála sem varða gengistryggð lán, í framhaldi af dómi Hæstaréttar í febrúar. Auk fjármálafyrirtækja áttu umboðsmaður skuldara, Neytendastofa og talsmaður neytenda aðild að samstarfinu. Meðal þess sem unnið var að var túlkun á dóminum, aðferð við útreikning og endurskoðun þeirra.

Fimm til tíu mál

Ákveðið var að leita til óháðra lögmanna til að greina þau álitaefni sem nauðsynlegt er að láta reyna á fyrir dómi, fara yfir dómsmál sem nú eru rekin fyrir dómstólum með tilliti til þess hvaða mál geta dregið úr réttaróvissu og gefa leiðbeiningar sem nýst geta við framsetningu á málsástæðum. SFF og Drómi tilnefndu Aðalstein E. Jónasson hrl. og Stefán A. Sveinsson hrl. Umboðsmaður skuldara tilnefndi Einar Huga Bjarnason hdl. og Sigríði Rut Júlíusdóttir hrl. Þeir hafa nú skilað samantekt þar sem tilgreind eru um tuttugu ágreiningsefni sem reynt gæti á fyrir dómstólum.

„Greind voru þau dómsmál sem nú þegar eru fyrir dómstólum vegna gengislána. Í ljós hefur komið að í þeim fáu málum sem kunna að hafa fordæmisgefandi áhrif mun einungis reyna á örfá þeirra álitaefna sem nefnd eru í samantekinni. Næsta skref samstarfsins er því að velja mál sem hentug eru til þess að bera undir dómstóla, með álitaefni lögmannanna í huga. Líklegt er að höfða þurfi fimm til tíu mál til að fá svör við helstu álitaefnunum. Óskað verður eftir flýtimeðferð hjá dómstólum og verði þeir við þeirri beiðni er vonast til að dómar Hæstaréttar í fyrstu málunum geti legið fyrir í haust,“ segir í tilkynningu frá SFF og Umboðsmanni skuldara. Til að hægt sé að fá skorið úr álitaefnum þurfa ýmist lántakendur eða fjármálafyrirtæki að hafa frumkvæði að málshöfðun.

Helstu álitaefni

Í tilkynningunni eru listuð helstu álitaefni sem þarf að fá úr skorið. Þau eru:

  • Áður en endurútreikningur á íbúðalánum sem alltaf hafa verið í skilum og falla undir dóminn getur hafist er mikilvægt að fá úr því skorið hvaða reikningsaðferð skal nota og frá hvaða tímamarki lántaki var ekki lengur í góðri trú með að greiða samningsvexti.
  • Áður en hafist verður handa við endurútreikning annarra lána þarf að fá úr því skorið hvort lengd lánstíma og fjárhæð viðbótargreiðslu falli undir fordæmi dóms Hæstaréttar og þ.a.l. skammtímalán á borð við bílalán.
  • Ef ekki hefur verið greitt af láni í samræmi við upphaflega lánaskilmála þarf að fá úr því skorið hvort það skipti máli að lánið hafi á tilteknum tíma verið í vanskilum og þá hvort líta skuli á hvern gjalddaga sjálfstætt eða á lánið í heild. Líklega þarf að fá úr því skorið hvaða þýðingu það hefur ef lántaki hefur notið greiðsluúrræða, svo sem greiðslujöfnunar, greiðsluskjóls, breytinga á greiðsluskilmálum eða greiðslu hluta af afborgun eða vöxtum.
  • Hvað varðar fyrirtæki og aðra lögaðila þarf að fá úr því skorið hvort og að hvaða marki dómurinn kann að að hafa fordæmisgefandi áhrif fyrir þau.