Á fundi bankaráðs Seðlabanka Íslands í dag, 13. mars 2014, var ákveðið að fela Ríkisendurskoðun að gera úttekt á greiðslum lögmannsreikninga bankastjóra Seðlabanka Íslands vegna málaferla hans við bankann. Kemur þetta fram í tilkynningu frá bankaráðinu.

Þar segir að reikningarnir hafi verið greiddir af Seðlabankanum frá lokum árs 2011 til miðs árs 2013. Er Ríkisendurskoðun jafnframt falið að kanna hvort farið hafi verið að lögum og reglum við meðferð málsins.

Bankaráð Seðlabanka Íslands leggur í tilkynningunni áherslu á að skoðun þessa máls verði vönduð og að málið verði upplýst, enda verkefni bankaráðs að gæta þess að farið sé að lögum og reglum um bankann og standa vörð um hagsmuni Seðlabanka Íslands.