Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,53% það sem af er degi og er 5.660,34 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Glitnir hefur hækkað um 3,53% en bankinn birti fyrsta ársfjórðungsuppgjör sitt í dag og nam hagnaðurinn 11,2 milljörðum króna fyrir skatta á tímabilinu, samanborið við 3,6 milljarða á sama tíma fyrir ári.

Landsbankinn hefur hækkað um 2,73% en hann birti einnig fyrsta ársfjórðungsuppgjör sitt í dag og nam hagnaður bankans 17,3 milljörðum fyrir skatta samanborið við 7,4 milljarða króna á sama tímabili árið 2005.

Straumur-Burðarás hefur hækkað um 1,78% en hann birti ársfjórðungsuppgjör sitt þann 27. apríl og skilaði metafkomu.

Actavis Group hefur hækkað um 1,49%, félagið mun birta uppgjör sitt þann 11. maí en greiningardeild Glitnis birti þann 27. apríl nýtt verðmat á félagið og metur það á 226,7 milljarða sem jafngildir genginu 68,1 krónur á hlut. Þegar þetta er skrifað er gengið 61 króna á hlut.

Kaupþingi banki hefur hækkað fimmta mest af félögunum í Kauphöllinni, það sem af er degi og nemur hækkunin 1,32%. Hann birti ársfjórðungsuppgjör sitt þann 27. apríl og jókst hagnaður bankans um 69,5% á fyrsta ársfjórðungi, samanborið við tímabilið í fyrra og er það mesti hagnaður í sögu bankans.