Fjármálaeftirlitið (FME) hefur reiknað út áhrif af álagsprófi gagnvart íslensku bönkunum og er niðurstaðan sú að þeir standast álagsprófið.

í samræmi við ákvæði reglna nr. 530/2004 með áorðnum breytingum. Álagsprófið gerir ráð fyrir að fjármálafyrirtæki standist samtímis áföll í formi tiltekinnar lækkunar á hlutabréfum, markaðsskuldabréfum, vaxtafrystum/virðisrýrðum útlánum og fullnustueignum og áhrifa af lækkun á gengi íslensku krónunnar án þess að eiginfjárhlutfallið fari niður fyrir lögboðið lágmark.

Heildarniðurstaða framangreindra álagsprófa er að eiginfjárhlutfall KB lækkar úr 12,1% í 9,2%, Glitnis úr 13,7% í 12,5%, Landsbanka úr 15,1% í 12,7% og Straums Burðaráss úr 31,7% í 24%. Bankarnir standast því allir álagsprófið og eru töluvert yfir lögbundnu 8% hlutfalli eftir reiknað áfall. Í Vegvísi Landsbankans er bent á að eiginfjárhlutfall KB banka fer hins vegar undir eigin markmið bankans, sem er 11% eins og markmið Landsbanka og Glitnis.