Talsmaður Kaupþings hafnar því að bankinn hafi verið stærsti lánardrottinn Gnúps en vill eins og aðrir talsmenn bankanna að öðru leyti ekki tjá sig um málefni félagsins.

Fulltrúar Glitnis, Kaupþings og Landsbanka kveðjast ekki vilja tjá sig um frétt Viðskiptablaðsins í gær um aðdraganda þess að ráðist var í endurskipulagningu Gnúps og eignasölu vegna fjárhagsþrenginga félagsins.

Í Viðskiptablaðinu í dag er rætt við talsmenn bankanna. Áskrifendur geta nálgast blaðið á pdf formi hér á vb.is. Þeir sem ekki hafa slíkan aðgang geta sótt um hann hér: http://vb.is/vb/?gluggi=tolublod_umsokn