Bankarnir þurfa að hægja á vexti sínum ætli þeir sér að minnka áhyggjur erlendra aðila og fjárfesta varðandi íslenskt efnahagslíf.
Þetta sagði Geir H. Haarde, forsætisráðherra í viðtali við Financial Times í gær en á vef blaðsins segir að auknar áhyggjur séu af íslensku bönkunum vegna skuldatrygginarálags þeirra.
Geir segir bankana hafa verið ákafa í útrás sinni og hugsanlega sé kominn tími til að endurskoða þá stefnu.
Í frétt FT er greint frá því að Moody‘s hafi í síðustu viku lækkað lánshæfismat stærstu íslensku bankanna, Kaupþings, Landsbankans og Glitnis. Þá segir blaðið að fjárhagsstaða bankanna sé stöðug en nýjasta einkunn Mood‘s hafi lækkað gengi krónunnar í sögulegt lágmark gagnvart evrunni.
Einnig segir blaðið að bankarnir hafi verið helsti drifkrafturinn í hröðum vexti íslenska efnahagsins síðustu ár og séu eignir þeirra nú áttfalt meiri en þjóðarframleiðsla íslendinga.
En blaðið segir bankanna hafa hægt á starfssemi sinni undanfarin misseri og nefnir að Kaupþing hafi hætt við kaup sín á NIBC bankanum í Þýskalandi.
Aðspurður um skuldatryggingarálag bankanna segir Geir að ekki þurfi að hafa áhyggjur af endurgreiðslu frá þeim og hvað þá frá íslenska ríkinu. Hann segir að á næstunni verði farið út í verkefni til að endurvekja traust fjárfesta, „margir skilja ekki hvað er í gangi og það er eitthvað sem við þurfum að vinna að,“ segir Geir að lokum.
Lárus Welding, forstjóri Glitnis segir i viðtali við blaðið að Glitnir muni halda áfram að auka fjölbreytni sína erlendis og tryggja tekjur sínar.