Rétt í þessu gengu Hreiðar Már Sigurðsson og Ingólfur Helgason, forstjórar Kaupþings inn til fundar í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.

Einnig gengu til fundar Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, Björgólfur Thor Björgólfsson og Friðrik Már Baldursson, prófessor í fjármálum við Háskólann í Reykjavík.

Þessi hópur hafði rétt áður fundað á skrifstofum Exista við Tjarnargötu, steinsnar frá Ráðherrabústaðnum.

Uppfært 17.49: Hreiðar Már og Ingólfur hafa nú yfirgefið fundinn. Jón Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra og fyrrverandi seðlabankastjóri er nú meðal þeirra sem dvelja í Ráðherrabústaðnum.