Fjármálaráðherra hefur skipað í stjórn Bankasýslu ríkisins og hefur hún formlega tekið til starfa. Bankasýsla ríkisins er ætlað að fara með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum, í samræmi við lög, góða stjórnsýslu- og viðskiptahætti og eigendastefnu ríkisins á hverjum tíma, og leggur þeim til fé fyrir hönd ríkisins á grundvelli heimilda í fjárlögum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu en í stjórn Bankasýslu ríkisins eru skipuð þau Þorsteinn Þorsteinsson, rekstrarhagfræðingur, stjórnarformaður, Sonja María Hreiðarsdóttir, lögmaður, varformaður, Sigurður B. Stefánsson, hagfræðingur og Guðrún Johnsen, hagfræðingur, til vara.

Fram kemur að skipun þeirra er ótímabundin, en Bankasýslan skal hafa lokið störfum eigi síðar en 5 árum eftir að hún er sett á fót.

Meðal fyrstu verkefna stjórnarinnar verður að auglýsa starf forstjóra laust til umsóknar og að skipa í valnefnd sem ætlað er að velja fulltrúa í stjórn fjármálafyrirtækja sem stofnunin fer með eignarhald á.

„Það er mat fjármálráðherra að í nýskipaðri stjórn búi staðgóð og breið þekking á viðfangsefnum Bankasýslu ríkisins enda uppfylli stjórnarmenn þau hæfnisskilyrði sem kveðið er á um í 6. gr. laga um hana,“ segir í tilkynningunni.

„Bankasýsla ríkisins skal samkvæmt lögum leggja áherslu á endurreisn og uppbyggingu öflugs innlends fjármálamarkaðar og stuðla að virkri og eðlilegri samkeppni á þeim markaði, tryggja gagnsæi í allri ákvarðanatöku varðandi þátttöku ríkisins í fjármálastarfsemi og tryggja virka upplýsingamiðlun til almennings.“