Aðeins mánuði eftir að morð á háttsettum starfsmanni Seðlabanka Rússlands, Andrei Kozlov, skók efnahagslíf landsins, tilkynnti saksóknaraembætti Moskvu að annar bankastarfsmaður hafi verið myrtur.

Alexander Plokhin, forstjóri útibús annars stærsta banka Rússlands, Vneshtorgbank, var skotinn í höfuðið fyrir utan íbúð sína á miðvikudaginn og segir saksóknaraembættið að flest bendi til þess að um leigumorð sé að ræða.