Seðlabankinn greiddi málskostnað Más Guðmundssonar seðlabankastjóra þegar hann leitaði eftir því fyrir dómstóum að laun hans yrðu ekki lækkuð. Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag.

Kjararáð lækkaði laun Más eins og annarra embættismanna árið 2009 og máttu þeir þá ekki hafa hærri laun en Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.

Már taldi  kjararáð ekki hafa verið heimilt að skerða laun hans og starfskjör eftir skipun hans í embætti. Már tapaði málinu í héraðsdómi og áfrýjuðu máli í Hæstarétti í aprí í fyrra. Hæstiréttur ákvað í sínum dómi að fella málskostnað niður.

Hvorki Lára V. Júlíusdóttir, sem var formaður bankaráðs Seðlabankans frá 2009 til 2013, né Ásta H. Bragadóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs bankans, vildu tjá sig um málið í samtali við blaðið. Ragnar Árnason prófessor, sem hefur setið í bankaráði frá árinu 2009, staðfesti í samtali við blaðið málið hafi aldrei verið borið undir bankaráðið, hann hafi hvorki séð vísað til þessa máls í fundargerðum né hafi það verið borið upp á þeim fundum sem hann sat.