Stjórn færeyska bankans BankNordik leggur til við aðalfund bankans, sem haldinn verður þann 26. mars, að greiddur verði arður til hluthafa að fjárhæð 10 milljónir danskra króna, andvirði um 220 milljóna íslenska króna. Verði tillagan samþykkt verður arðurinn greiddur út þann 4. apríl næstkomandi.

Hagnaður færeyska bankans, sem skráður er í Kauphöll Íslands, var einar 103,1 milljónir danskra króna í fyrra, andvirði um 2,3 milljarða íslenskra króna.