Vinnueftirlitið hefur nú lagt bann við vinnu á byggingarvinnustaðnum Urðarhvarfi 6 í Kópavogi. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Vinnueftirlitsins .
Meðal annars kemur fram að fallvarnir við svalir séu óviðunandi.
Fram kemur að fyrirtækið skuli tilkynna vinnueftirlitinu um úrbætur og útfærslu þeirra innan tilgreinds tímafrests. Annars verði framkvæmdir stöðvaðar.