Gamlárspartýið getur verið besta partý ársins sem endist fram á morgun á meðan hjá öðrum snýst það aðallega um gott skaup og almennilega rakettur. Hátíðlegar veislur sem enda með kampavínssturtum eða afslöppuð boð með góðum vinum gætu hentað einhverjum. Huffington Post er með nokkur ráð fyrir þá sem sitja sveittir heima að skipuleggja partý ársins.

  • Notið mikið af kertum í sama lit en af ólíkum stærðum og gerðum.
  • Litlar borðsprengjur og aðrar stærri rakettur eru ómissandi til að kveðja gamalt ár og hefja nýtt.
  • Silfurlitaðar, svartar og hvítar blöðrur er auðveld leið til að skreyta hátíðlega.
  • Sérstakur bar fyrir gesti í borðstofunni býr til réttu stemninguna. Gestir geta þá bjargað sér sjálfir.