Barack Obama hefur verið endurkjörinn forseti Bandaríkjanna. Þó enn eigi eftir að telja um 10% atkvæða í mörgum fylkjum er sigurinn talinn Obama.

Þegar niðurstöðu komu fyrir Ohio fylki, eins af 10 fylkjunum þar sem mest óvissa var, lýstu allir helstu fjölmiðlar Bandaríkjanna yfir sigri Obama.

Demókrataflokkurinn er einnig mjög líklegur til að vera með meirihluta í öldungadeildinni en Repúblíkanar halda meirihlutanum í fulltrúadeildinni.