Barbara Karakyriakou hefur verið ráðin sölustjóri fyrir Norður-Ameríku með aðsetur í Boston, en hún hóf störf hjá Icelandair árið 2012 í söludeild á skrifstofu félagsins í Boston.

Starfaði hún áður hjá Olympic Airways í Grikklandi og New York og einnig hjá Athens City Travel í Boston.

Barbara er með BA gráðu í flug- og ferðaþjónustufræðum frá háskólanum í Þessaloniki í Grikklandi, auk þess sem hún er að ljúka BA námi í líf- og tölvunarfræði frá Harvard háskólanum í Boston.