Sala á Barbie-dúkkum dróst saman um fimmtán prósent á alþjóðlegum markaði á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Þessu greinir Vísir frá. Heildarsala Mattel, leikfangafyrirtækisins sem framleiðir dúkkurnar, dróst saman um níu prósent á sama tíma og tekjur fyrirtækisins lækkuðu um 61 prósent.

Sala á Barbie hefur dregist saman um meira en tíu prósent síðustu fjóra af fimm ársfjórðungum um heim allan. Í Norður-Ameríku, þar sem Barbie var búin til fyrir 55 árum, hefur salan minnkað um yfir tíu prósent síðustu átta ársfjórðunga í röð.

Því virðist að vinsældum Barbie sé senn að ljúka. Ástæða þess gæti meðal annars verið hörð gagnrýni femínista á vörunni síðastliðin árin. Sala á öðrum dúkkum Mattel, svo sem Monster High, hefur hins vegar verið góð síðustu ár.