Alls bjóða sex aðilar sig fram til setu í stjórn Icelandair Group, en kosið verður í stjórn félagsins á aðalfundi sem haldinn verður á fimmtudaginn næsta. Fimm aðilar sitja í stjórn Icelandair Group. Þeir sem gefa kost á sér eru:

  1. Ásthildur Margrét Otharsdóttir
  2. Katrín Olga Jóhannesdóttir
  3. Magnús Magnússon
  4. Sigurður Helgason
  5. Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir
  6. Úlfar Steindórsson

Af þeim sem bjóða sig fram sitja allir þegar í stjórn Icelandair Group nema Svanhildur Nanna.