Barnaheill - Save the Children hafa ráðist í samstarf við lyfjafyrirtækið GlaxoSmithKline (GSK) með það að markmiði að koma í veg fyrir dauða milljón barna undir fimm ára aldri á næstu fimm árum. Aðgengi að tveimur tegundum barnalyfja verður aukið til að ráðast gegn nýbura- og ungbarnadauða.

Í tilkynningu kemur m.a. fram að rannsóknir og þróunarvinna GSK hafa leitt í ljós að sýklaeyðandi efni í munnskoli er hægt að umbreyta í lyf fyrir nýbura. Fyrirtækið hefur einnig kynnt til sögunnar sýklalyf í duftformi sem hentar vel ungum börnum með lungnabólgu, en hún er ein helsta dánarorsök barna undir fimm ára aldri.

Þetta er í fyrsta sinn sem Barnaheill - Save the Children taka þátt í að rannsaka og þróa lyf fyrir börn, en það gerist með þátttöku í sérstakri stjórn sem hefur það meðal annars að markmiði að hraða þróun nýsköpunar í lyfjum sem vinna gegn barnadauða. Stjórnin skoðar einnig nýjar aðferðir sem tryggja sem mesta dreifingu og aðgengi að lyfjunum í þróunarlöndum. GSK mun styrkja hlutverk Save the Children í heilsufarsmálum, styðja sérfræðiþekkingu og veita þannig börnum í afskekktustu og vanþróuðustu samfélögunum grunnheilbrigðisþjónustu.

Í tilkynningunni segir að þótt góður árangur hafi náðst í baráttunni gegn barnadauða, hafi næstum sjö milljónir barna látist fyrir fimm ára aldur á árinu 2011 af viðráðanlegum orsökum. Með því að auka aðgengi að heilbrigðisþjónustu, bólusetningum og næringarbættum mat, sé hægt að bjarga einni milljón barna undir fimm ára aldri frá dauða á næstu fimm árum. Bólusetning fátækustu barna er meðal aðferða sem notaðar verða auk þess sem heilbrigðisstarfsmönnum verður fjölgað. Þá er hluti verkefnisins þróun á næringarbættum mat á viðráðanlegu verði til að spyrna gegn vannæringu barna.