Baugur Group hf. fékk afhenta endurálagningu ríkisskattstjóra vegna tekjuáranna 1998-2002 á gamlársdag. Félaginu er gert að greiða samtals u.þ.b. 464 m. kr., en að teknu tilliti til greiðslna, sem áður hafa verið inntar af hendi, og endurkröfuréttar félagsins á þriðju aðila, mun félagið sjálft þurfa að bera u.þ.b. 282 milljónir króna. Af þeirri fjárhæð eru u.þ.b. 223 milljónir króna vegna meints vanframtalins söluhagnaðar við samruna Hagkaupa hf. og Bónuss sf. og fleiri félaga þegar Baugur hf. var stofnaður sumarið 1998 segir í yfirlýsing frá Baugi Group hf.

Þar segir ennfremur að félagið sættir sig ekki við forsendur endurákvörðunarinnar að því er varðar tilurð Baugs hf. 1998 og mun skjóta ágreiningi um það efni til yfirskattanefndar og/eða dómstóla.

"Af varfærnisástæðum var hugsanleg tekjuskattskvöð vegna niðurstöðu í frumskýrslu skattrannsóknarstjóra ríkisins frá því í byrjun júní 2004 færð í ársreikningi félagsins fyrir árið 2003. Hagnaður þess árs var 9.500 milljónir króna, að teknu tilliti til þeirrar kvaðar.

Að mati félagsins eru tilvikin, sem skattrannsóknin og endurákvörðun ríkisskattstjóra tekur til, háð miklum vafa. Mikilvægt er, að félagið fái frið til að færa fram athugasemdir sínar gagnvart réttum yfirvöldum. Félagið harmar þann leka, sem orðið hefur um rannsókn á málefnum félagsins, en alsiða er og lögbundið, að halda trúnað um slík mál," segir í yfirlýsingu sem Hreinn Loftsson stjórnarformaður Baugs skrifar undir.