Dow Jones fréttaveitan greinir frá því í dag að fjárfestahópurinn Newco, sem Baugur fer fyrir íhugi enn yfirtökutilboð á bresku tískuvöruversluninni Moss Bros.

Tilboðið er sem  en Newco hefur boðið 42 pens fyrir hvern hlut í félaginu og segir fréttaveitan að verið sé að binda síðustu hnútana á tilboðið.

Moss Bros tilkynnti fyrst þann 25. febrúar að Baugur ásamt öðrum fjárfestum (undir nafni Newco) hefði gert óformlegt yfirtökutilboð í félagið. Það tilboð hefur ekki enn fengist staðfest.