Gengi bréfa Woolworths hækkaði í dag um 6,2% vegna orðróms um að breska bóka- og ritfangaverslunin WH Smith hefði áhuga á að taka yfir félagið.

Hins vegar sagði heimildarmaður DowJones-fréttastofunnar að Baugur hafi verið að selja í French Connection til að kaupa bréf í Woolworths.

Heimildarmenn Viðskiptablaðsins sögðu í síðustu viku Baug ekki hafa verið að kaupa í félaginu, en orðrómur um áhuga Baugs varð til verulegrar hækkunar á bréfunum þá.