Gengi bréfa bresku matvöruverslunarkeðjunnar Wm Morrison hækkaði um 1,7% í morgun en Baugur hefur verið orðaður við félagið eftir sölu á eignarhlut sínum í Marks & Spencer.

Hins vegar segja sumir sérfræðingar á breskum fjármálamarkaði að hækkunina megi rekja til þess að Wm Morrison mun gefa upp afkomutölur á morgun.

Wm Morrison hefur átt undir högg að sækja síðan félagið gleypti keppinautinn Safeway.