Baugur Group hefur bætt við sig í Keops fasteignafélaginu og er nú komið með 32% af hlutafénu að því er kemur fram á netsíðu danska viðskiptatímaritinu Börsen. Félagið keypti í dag 2,5 milljón hluta fyrir 608 milljónir króna.

Þetta kemur til viðbótar við þá 700.000 hluti sem Baugur keypti fyrr í vikunni. Fyrr í vikunni keypti Pálmi haraldsson 32% í félaginu þannig að það er að lang stærstum hlut atil í eigu Íslendinga.