Stjórn Somerfield hefur staðfest að Baugur hafi áhuga á að gera yfirtökutilboð í fyrirtækið og er miðað við að kaupverðið sé um einn milljarður punda eða hátt í 120 milljarða íslenskra króna.

Gert er ráð fyrir að núverandi stjórnendur sitji áfram við stjórnvölinn en tilboðið er háð ýmsum skilyrðum, t.a.m. áreiðanleikakönnun og fjármögnun.