Baugur hefur aukið eignarhlut sinn í fjarskipta- og fjölmiðlasamstæðunni Dagsbrún í 34,55%, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Þar segir að Baugur keypti 229.473.097 hlut í félaginu í dag, sem samsvarar 4,56% af heildarhlutafé, og nemur heildareign félagsins nú 1.737.833.096 hlutum.