Baugur Group hefur aukið hlut sinn í bresku verslunarkeðjunni Woolworth. Á síðustu dögum hafa þeir keypt um 1,88% í félaginu og eiga nú um 8,06% hlut í félaginu, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar í London.

Með kaupunum styrktu þeir stöðu sína sem stærsti einstaki hluthafinn.

Þann 9. febrúar tilkynnti Baugur Group um kaup á 6,18% hlut í Woolworth.