Baugur Group hefur í dag keypt 277. 079.074 hluti í Burðarási hf. í samræmi við framvirkan samning sem félagið hafði gert við Landsbanka Íslands. Jafnframt hefur Baugur Group framselt bréfin til Íslandsbanka sem samhliða hefur selt Baugi Group bréfin framvirkt til 3 mánaða.

Þessi viðskipti hafa engin áhrif á atkvæðisrétt Baugs Group í Burðarási hf. segir í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar.