BG Capital ehf., dótturfélag Baugs Group hf., hefur í dag fært 5,6% hlut í FL Group hf. til Landsbanka Íslands vegna fjármögnunar með framvirkum samningum.

BG Capital ehf. fer eftir sem áður með atkvæðisrétt, rétt til arðs og önnur réttindi yfir hlutnum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá FL Group.