Hópur fjárfesta, sem leiddur er af Baugi, hefur gert formlegt kauptilboð í bresku stórvöruverslunina House of Fraser í dag, segir í tilkynningu til kauphallarinnar í London.

Baugur gerði óformlegt kauptilboð í keðjuna fyrr á þessu ári að virði 148 pens á hlut, sem samsvarar 46 milljörðum króna, og hefur nú lokið áreiðanleikakönnun. Kauptilboðinu hefur ekki verið breytt og búist er við að stjórn House of Fraser muni mæla með tilboðinu.

Fjárfestahópurinn inniheldur, auk Baugs, FL Group, skoska auðkýfinginn Sir Tom Hunter, bresku kaupsýslumennina Don McCarthy og Kevin Stanford og Bank of Scotland.

Bank of Scotland og Glitnir hafa sölutryggt lánsfjármögnun til að styðja við kaupin og ráðgjöf veita Glitnir og fjárfestingabankinn Rothschild.