Baugur Group rekur í dag um 4.000 verslanir í 35 löndum með 75 þúsund starfsmönnum. Stjórnendur félagsins hafa undanfarið verið að kynna sér ný markaðssvæði og horfa þar einkum til Asíu.
Miklar breytingar hafa orðið á rekstri Baugs Group síðan félagið hóf fjárfestingarstarfsemi sína árið 2001, en í dag eru undir hatti þess 38 mismunandi vörumerki, flest alþjóðleg. Að sögn forstjóra Baugs er horft til frekari uppbyggingar félagsins og hefur félagið meðal annars til skoðunar að fjárfesta í asískum vörumerkjum sem eiga möguleika á vestrænum mörkuðum.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu í dag. Áskrifendur geta lesið blaðið á pdf-formi hér á vefnum. Þeir áskrifendur sem ekki hafa sótt um aðgangsorð til að lesa blaðið á vefnum geta gert það hér .